Nokkur forrit sem geta hjálpað þér að byrja
Hægt er að nálgast spegla fyrir mIRC á vefsíðunni: http://www.mirc.com/get.html Fleiri IRC forrit fyrir Unix/X11 er hægt að nálgast á Linuxberg. mIRC fyrir Windows Stýrikerfið er sett upp með því að tvísmella á "exe-skránna". Það eru margar mismunandi leiðir til að setja upp IRC á UNIX sem er oftast lýst í "README" textaskrá. Til að hjálpa þér við að stilla mIRC, þá höfum við búið til nýjar mirc.ini, popups.ini og servers.ini skrár sem henta ScoutLink spjallnetinu sérstaklega vel. Þú einfaldlega nærð í þessar skrár héðan með því að smella á tenglana og afritar þá síðan yfir í möppuna sem þú settir mIRC uppí (t.d. "c:/software/mirc"). Því næst þarftu að endurræsa forritið og þá ætti allt að vera klárt. Skrárnar eru gerðar fyrir mIRC 5.6 en ættu að virka fyrir flestar útgáfur. |
![]()
|