Vertu með! Og hittu okkur ...
Það er nokkuð auðvelt að taka þátt í JOTI. Allt sem þú þarft er tölva, internettenging og forrit. Þú þarft að minnsta kosti eftirfarandi forrit:
- vafra
til dæmis Firefox, Opera eða Internet Explorer
- Tölvupóstforrit
Eða þú getur notað vefpóst JOTI eða innbyggt tölvupóstforrit í vafranum.
- spjallforrit (IRC útstöð)
til að hitta og spjalla við skáta í öðrum löndum
Það eru mörg önnur tæki sem geta bætt JOTI upplifun þína. Athugaðu hvað þú hefur við hendina og getur notað. Hér eru nokkrar hugmyndir:
- Nota fax til að senda handskrifaðar kveðjur til annarra skátafélaga
- Nota skanna til að skanna inn myndir af skátavinum eða skátafélaginu þínu.
- Tengja hljóðnema við tölvuna svo þú getir notað tal-spjall.
- Spyrja radíóamatöra um hjálp til að tala við skáta útí heimi gegnum talstöðvar.
- Fá lánaða stafræna myndavél og taka myndir af þátttakendum í þínu skátafélagi eða skátahóp.
- Nota vefmyndavél til að senda reglulegar myndir frá staðnum þar sem þú tengist JOTI.
Neðangreindar síður ættu að hjálpa þér að tengjast JOTI og setja upp tölvuna þína. Frekari hjálp er hægt að fá á hjálparborði síðunnar:
|  |

|