Hvernig er hægt að taka þátt í JOTI með Tölvupóst

Þótt þú hafir ekki aðgang að IRC forritinu eða vafra getur þú samt tekið þátt í JOTI skátamótinu. Skátamótið er haldið á internetinu en það samanstendur ekki einungis af IRC forritinu og veraldarvefnum heldur einnig tölvupósti. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga ef þú hyggst taka þátt í mótinu með TÖlvupósti.

Byrja snemma

Mikilvægast er að ná sambandi við önnur skátafélög eða hópa eins fljótt og hægt er, þ.e. áður en mótið er haldið. Þú þarft að hafa safnað tölvupóstföngum áður en mótið byrjar svo þú getir byrjað að spjalla um leið og mótið opnar en ekki eyða stærstum hluta mótsins í að leita að einhverjum til að spjalla við. Til að finna tölvupóstföng annarra skátafélaga eða hópa getur ÞÚ flett í gegnum nafnspjaldaskránna..

Ef hópurinn er með eitt grunntölvupóstfang þá hvetjum við þig að sjálfsögðu til að skrá það líka í nafnspjaldaskránna.

Ekki nota venjulega tölvupóstfangið þitt

Eitt af því sem þarf að hafa í huga er að þú vilt ekki fá fjöldann allan af pósti, sem þig langar ekkert að fá, í venjulega pósthólfið þitt eftir JOTI. Til að tryggja það að venjulega tölvupósthólfið þitt sé laust við ruslpóst mælum við með því að þú notir sérstakan JOTI tölvupóst eða eitthvað af fríum tölvupóstföngum á netinu, t.d.GMX, Bigfoot og Yahoo.