Bakgrunnur

Alheimsmót skáta á internetinu (JOTI) er alþjóðlegt skátamót á internetinu sem haldið er þriðju heilu helgi októbermánaðar á hverju ári. Þetta er opinber viðburður Alheimshreifingar Skáta.

Þessa helgi hittast þúsundir skáta úr öllum heimshornum og spjalla saman í gegnum internetið. Við það er notuð öll tiltæk tækni, allt frá vefvöfrum til póstforrita, spjallforrita, hljóðnema, myndskanna og stafrænna myndavéla. Skátar geta sameinað þennan viðburð við Alheimsmót Skáta í loftinu (JOTA), þar sem skátar geta átt samskipti sín á milli með hjálp radíóamatöra og talstöðva þeirra.

Flest öll samskipti eiga sér stað í gegnum tölvupóst eða með hjálp IRC spjallkerfisins (e. Internet Relay Chat). JOTI gerir þér kleift að kynnast skátum frá öðrum löndum, lifnaðarháttum þeirra og hvernig þeir stunda sitt skátastarf. Þessi sambönd endast oft í mörg ár og mynda grunn fyrir hópferðir og aðra spennandi viðburði.

Allt frá árinu 1996 hefur JOTI verið opinber WOSM atburður og hefur varanlegt svæði á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu skáta. Til þess að sjá alla orðsendingu Alþjóðaskrifstofunnar um JOTI (2007) smelltu þá hér.

Ef við höfum vakið einhvern áhuga hjá þér, kíktu þá á nokkrar hugmyndir á heimasíðu okkar og taktu þátt í JOTI 2007.