Uppsetning á TeamSpeak& stillingar

Til að taka þátt í tal-Spjalli þarftu hljóðkort, hljóðnema, hátalara og tal-spjall forrit. Á JOTI munum við nota forritið TeamSpeak til að tal-spjalla. Á þessari síðu munum við leiðbeina þér við uppsetningu forritsins og stillingu þess svo lengi sem allur fyrrgreindur búnaður sé rétt upp settur og virki.

Náðu í TeamSpeak ústöð (TeamSpeak client) hérna í tölvuna þína.

Eftir að hafa náð í (downloadað) forritið, byrjaðu uppsetningu með því að tvísmella á TeamSpeak uppsetningarskránna sem þú náðir í. Ef það eru margir notendur á tölvunni þinni þarftu að vera viss um að vera skráð(ur) inn sem kerfisstjóri (administrator).

Næstu skrefum fylgja skjámyndir (screenshot). Þú getur skoðað þær nánar með því að smella á þær.
  • Uppsetning Teamspeak; byrjun
    Eftir að þú hefur tvíklikkað á uppsetningarskránna sem þú náðir í mun fyrsti glugginn birtast. Smelltu bara "Next" takkan til að halda áfram.



  • Leyfisbréf
    Til að samþykkja leyfisbréfið á TeamSpeak útstöð veldu "I accept the agreement" og smelltu á "next" takkann.



  • Veldu uppsetningarstað forrits
    Nú getur þú valið hvar, í hvað möppu í tölvunni þinni, á að setja TeamSpeak upp. Venjulega er það gert inn í "Program files" möppunni en þú getur valið hvaða möppu sem þú vilt. Smelltu á "Next" til að halda áfram.



  • Veldu "Start Menu" möppu
    Þú getur valið nafn TeamSpeak möppunnar í "Start Menu". Þú þarft ekki að breyta tillögu forritsins. Til að halda áfram smelltu á "Next".



  • Veldu aðrar valaðgerðir
    Hakaðu í boxið ef þú vilt TeamSpeak "icon" á desktopinn þinn. Smelltu á "Next" til að halda áfram.



  • Tilbúið til uppsetningar
    Þú munt nú sjá lista yfir val þitt. Ef allt er rétt valið smelltu á "Install" til að setja upp forritið.



  • Uppsetning
    Núna munu TeamSpeak skrárnar verða skrifaðar á harða diskinn þinn.



  • TeamSpeak Codec uppsetning
    Eftir að skrárnar hafa verið skrifaðar á harða diskinn þinn mun opnast gluggi sem biður þig að setja upp TeamSpeak codec. Smelltu á "Næst" til að halda áfram.



  • Codec uppsetning - Kerfisupplýsingar
    Gluggi með kerfisupplýsingum mun birtast. Ef þú hefur ekki nægileg réttindi á tölvunni mun villa birtast (Sjá athugasemd efst). Smelltu á "Next" til að halda áfram.



  • Codec uppsetning - Lokið
    Þegar uppsetningu er lokið birtist gluggi sem í stendur "Installation successful". Smeltu á "Finish" til að loka codec uppsetningunni.



  • Upplýsingar
    Athugasemdir með útgáfunni eru nú birtar. Þú getur haldið áfram með því að smella á "Next".



  • Uppsetningu lokið
    Nú hefur þú sett upp TeamSpeak útstöð á tölvunni þinni. Til að keyra útstöðina strax, hakaðu í boxið og smelltu á "Finish" til að loka uppsetningarskránni og opna TeamSpeak útstöðina.



  • TeamSpeak Gluggi
    TeamSpeak gluggi mun opnast ef ekkert sé að. (Ef glugginn opnast ekki og þú hakaðir í boxið skaltu endurtaka uppsetningu skref fyrir skref)



  • Breyta "Sound Input/Output" stillingum
    Svo að að hljóðneminn þinn sé ekki ávallt virkur mælum við með því að þú stillir á "push to talk". Það er gert með því að smella á "Settings" í valmyndinni efst og velja "Sound Input/Output". Þá opnast gluggi og þú þarft að velja "Push to talk". Því næst velur þú "set" hnappinn en þá opnast lítill gluggi sem biður þig um að velja hnapp á lyklaborðinu. Veldu þann hnapp sem þú ætlar að halda inni til að tala í hljóðnemann. Við mælum með ALT takkanum. Smelltu á "close".



  • Gera hljóðviðvaranir óvirkar
    Þar sem margar hljóðviðvaranir geta ruglað þig, þá mælum við með að þú gerir þær óvirkar. Til að gera það velur þú "Settings" efst í upphafsmynd forritsins og velur "Options". Þá opnast gluggi og þú þarft að velja flipa efst sem heitir "Sound notifications". Þar hakar þú við "Disable all sounds" og velur svo "ok" hnappinn. Eftir þetta hafa allar grunnstillingar verið framkvæmdar.



  • Tengjast spjalli
    Núna þarftu að tengjast spjalli. Veldu "Quick Connect" með því smella á "Connection" efst í upphafsglugganum. Þá opnast nýr gluggi þar sem þú þarft að skrá inn upplýsingar. "Server Address" er slóðin á rásina sem þú vilt tengjast (t.d. teamspeak.joti.org). Í "Nick name" reitinn skrifar þú gælunafn þitt. Í hina reitina þarf ekki að skrifa. Þegar það er búið skaltu smella á "Connect" takkann.



  • Tengsl komin á við spjall
    Ef þú hefur náð að tengjast spjallinu munu viðeigandi upplýsingar birtast í grunnmynd forritsins.



  • Skipta um spjallrás
    Til að skipta um spjallhóp veldu þá nafn hópsins og veldu "Channels / Switch to Channel".